Skjálaust heilsuband í stærð L/XL fyrir 145–240 mm úlnlið. Látlaus hönnun og mjúk ComfortFit-efnisól gera bandið hentugt til notkunar allan sólarhringinn, án skjás eða tilkynninga sem trufla athyglina. Heilsubandið skráir gögnin sjálfkrafa og samstillir þau við Garmin Connect, þar sem hægt er að skoða heilsu, svefn, æfingar og daglega virkni án áskriftar.
Innbyggðir skynjarar fylgjast meðal annars með púlsi, HRV-stöðu, streitu, öndun, húðhita og súrefnismettun blóðs. Body Battery metur orkustig líkamans yfir daginn, en ítarleg svefnskráning greinir svefnstig og blundi, gefur svefneinkunn og veitir ráðleggingar um svefnþörf. Training Readiness og Training Status veita jafnframt upplýsingar um æfingaálag, endurheimt og viðbrögð líkamans við þjálfun.
Hægt er að skrá yfir 80 tegundir æfinga með hnappinum á bandinu eða í Garmin Connect. Heilsubandið greinir einnig sjálfkrafa ýmsar hreyfingar, meðal annars göngu og hlaup. Við útivist getur bandið nýtt GPS-tengingu samhæfs snjallsíma til að skrá leið, vegalengd og hraða.
Rafhlaðan endist í allt að 10 daga og vatnsþol bandins er 5 ATM, svo hægt er að nota það í sundi.